RÚV og ESB-málið

Grein sem við Andrés Pétursson skrifuðum í Fréttablaðið, 16.5.2011.

Í lok júní hefjast hinar eiginlegu aðildarviðræður Íslands og ESB. Þá er lokið svokallaðri rýnivinnu, en í henni felst að löggjöf Íslands og ESB er borin saman á öllum sviðum. Því má segja að þá hefjist í raun nýr kafli í þessu ferli, sem hófst með umsókn Íslands að ESB í júlí árið 2009.

Mikilvægi upplýsingar og opinnar umræðu um ESB má ekki vanmeta. Ísland er upplýsingasamfélag og fjölmiðlaumhverfið hefur breyst mjög mikið á undanförnum tveimur áratugum. Með almennri notkun á internetinu og þeim upplýsingum sem þar finnast, verður myndin enn margbreytilegri.

Sá fjölmiðill sem hinsvegar hefur það hlutverk samkvæmt lögum að vera ,,fjölmiðill í þágu almennings“ (enska: public service), er Ríkisútvarpið. Í öðrum kafla laganna um RÚV eru 13 greinar og fjalla þær um hlutverk þess og skyldur: Þar segir meðal annars í greinum fjögur og fimm: ,,Að veita almenna fræðslu og gera dagskrárþætti er snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag. Að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Gæta skal fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.“

Nú er hægt að slá því föstu að ESB-málið er mál sem snertir ,,málefni lands og þjóðar sérstaklega“ og ásamt EES-samningnum árið 1995 og aðild Íslands að NATO árið 1949, er þetta eitt mikilvægasta málið sem er á ,,dagskrá“ hjá þjóðinni. Vald fjölmiðla til að setja mál á dagskrá er óumdeilt. Almenningur talar um þau mál sem komast í fjölmiðla og eru þar til umfjöllunar. Þessvegna er hlutverk RÚV í ESB-málinu gríðarlega mikilvægt. Að upplýsa almenning um kosti og galla aðildar, framleiða efni um ESB og þess háttar hlýtur því að falla undir hlutverk RÚV sem almannafjölmiðils, fjölmiðils fyrir alla íslensku þjóðina.

Það er okkar von, sem ritum þessa grein að RÚV rækti skyldur sínar við landsmenn í þessu mikilvæga máli og geri það á þann hátt að almenningur geti myndað sér skoðun út frá bestu mögulegu forsendum. Opin, málefnaleg og hreinskilin umræða hlýtur að teljast vera eitt af helstu einkennum lýðræðisins.

ESB-málið verður svo að lokum lagt í dóm þjóðarinnar, þegar aðildarsamningur er tilbúinn. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem þá liggja fyrir mun íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu segja annaðhvort JÁ eða NEI.

ESB-málið er mikil áskorun fyrir RÚV, hvort stofnunin nái að rækja skyldur sínar samkvæmt þeim lögum sem um hana gilda. Hvetjum við forsvarsmenn RÚV til þess að sjá til þess að svo verði, íslensku lýðræði til framdráttar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband