Að byggja brú

oresundsbron
Brýr eru stórkostleg uppfinning. Þær tengja saman lönd og landsvæði á snilldarlegan hátt.
Brúin yfir Skeiðarársand er gott dæmi hérlendis, sem og Borgarfjarðarbrúin, en hún er gott dæmi um vel heppnaða fjárfestingu í samgöngum. Niðurstaðan er kannski í stuttu máli sú að brýr skapa möguleika.


Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía (úr flokki hægrimanna, Moderaterna) er duglegur bloggari og notandi nútíma samskiptatækni. Á bloggi hans fær lesandinn sjaldséða innsýn í heim háttsetts stjórnmálamanns, Evrópu- og alþjóðasinna.


Í einni af nýlegri færslum sínum skrifar hann um brúna yfir Eyrarsund, á milli Danmerkur og Svíþjóðar. Hann var frá upphafi fylgismaður hennar, en það voru ekki allir. Olof Johansson, ráðherra umhverfismála (og formaður sænska Miðflokksins), var á móti brúarsmíðinni og vildi meðal annars rannsaka betur umhverfisáhrif hennar. Alþjóðleg nefnd sérfræðinga hafði þó komist að þeirri niðurstöðu að brúin væri ekki hættuleg umhverfinu. Olof var hins vegar ósáttur og sagði af sér árið 1994 vegna málsins. Þetta gerðist einmitt á þeim tíma þegar Svíar voru að klára aðildarviðræður við ESB, en landið gekk í sambandið 1. janúar 1995.


Nú er brúin hins vegar staðreynd, var formlega vígð árið 2000. Allir eru sammála um að um stórkostlega framför sé að ræða. Brúin hefur búið til nýtt atvinnusvæði og tækifæri sem áður voru ekki til eða að mörgu leyti takmörkuð. Danmörk og Svíþjóð eru nú tengd varanlega með brúnni og hefur þetta skapað mikil tækifæri fyrir báðar þjóðirnar.


Það má segja að EES-samningurinn hafi verið eins konar „brú" okkar Íslendinga inn í Evrópu og Evrópusambandið (ESB) á sínum tíma. Hann veitti okkur tækifæri sem ekki höfðu áður þekkst. Um 80% af útflutningi okkar fer til ESB og þaðan koma 70% þess sem við flytjum inn. Svo náin eru viðskiptaleg tengsl okkar við Evrópu. En þessi brú er nú byrjuð að eldast og á henni eru að margra mati vankantar. Þó held ég að það sé enginn á því að rífa hana niður. Þarf ekki bara að bæta við hana og gera hana betri?


Með fullri aðild að ESB tel ég að Ísland myndi eignast fyrir alvöru þá „brú" sem landið þarf á að halda til framtíðar. Vera heilshugar þátttakandi í samstarfi 27 fullvalda og sjálfstæðra ríkja, sem í raun berjast fyrir framförum á flestum sviðum mannlífsins og hafa ákveðið að taka sameiginlega á þeim vandamálum sem augljóslega þarf að glíma við í framtíðinni.


Íslendingar eru Evrópubúar og tilheyra Evrópu, bæði landfræðilega og menningarlega, en ekki síst stjórnmálalega. Við höfum frá upphafi haft samskipti við aðrar þjóðir. Þannig hefur það verið og þannig mun það verða. Nú er kannski komið að því að ákveða hvert við viljum stefna sem þjóð í þessum efnum. Sá á kvölina sem á völina.


En til þess að hægt verði að taka upplýsta ákvörðun þarf þjóðin upplýsingu. Þar komum við að hlutverki stjórnvalda, hagsmunasamtaka og kannski almennings sjálfs. Upplýsingarnar eru þarna úti; í dagblöðum, bókum, tímaritum, internetinu svo eitthvað sé nefnt. Íslenska þjóðin getur, rétt eins og aðrar þjóðir, vegið og metið þetta brýna hagsmunamál.


Höfundur er stjórnmálafræðingur og situr í stjórn Evrópusamtakanna.

FRBL 14-12-08


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband